Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagðist eftir jafntefli gegn Manchester United í dag að United gerði lítið annað en að verjast gegn Liverpool.
Leikurinn í dag endaði með 1-1 jafntefli þar sem Adam Lallana skoraði jöfnunarmark Liverpool á 85. mínútu.
Eftir leikinn sagði Klopp við blaðamenn:
„Þegar við komum hingað á þessu ári, á síðasta ári og árinu þar á undan, þá hafa þeir bara varist. Þetta er ekki gagnrýni, þetta er bara staðreynd."
Klopp talaði á svipaðan máta í viðtali við Sky Sports. „Síðan ég kom til Englands hefur Manchester United alltaf spilað svona," sagði hann.
Sjá einnig:
Klopp: Við spilum alltaf gegn vegg
Mourinho: Væri stoltur ef ég væri Ole - Klopp líkaði ekki matseðillinn
Klopp: "When we came here this year, last year and the year before they just defended, it’s not a criticism, it’s a fact."
— James Pearce (@JamesPearceLFC) October 20, 2019
Athugasemdir