Arteta: Hann hugsaði um mig eins og ég væri lítið barn

Mikel Arteta, stjóri Arsenal.

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal.

Mynd: EPA
Mikel Arteta og Mauricio Pochettino mætast í ensku úrvalsdeildinni á morgun, þegar Arsenal heimsækir Chelsea.
Arteta þekkir Pochettino vel en þeir léku saman tímabilið 2001-02 með Paris St-Germain. Arteta fór á láni til franska stórliðsins.

„Hann var einn áhrifamesti einstaklingur sem ég kynntist á leikmannaferlinum. Hann tók mig undir sinn verndarvæng og hugsaði um mig eins og ég væri lítið barn. Lítill bróðir. Hann var stór hluti af þeim árangri sem ég náði í París," segir Arteta um kollega sinn.
„Hann hefur verið mér fyrirmynd síðan þá. Ekki bara sem leikmaður heldur einnig sem stjóri. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir það sem hann gerði fyrir mig."
Arteta staðfesti á fréttamannafundi í morgun að Bukayo Saka, sem hefur skorað fjögur deildarmörk á tímabilinu, er klár í slaginn þrátt fyrir að hafa ekki verið með í 1-0 sigrinum gegn Manchester City og setið hjá í landsliðsverkefni Englands.

Mauricio Pochettino stjóri Chelsea

Mynd: EPA