20.12.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baulað á Havertz - „Þetta er ömurlegt"

Kai Havertz.

Mynd: Getty Images

Kai Havertz.

Mynd: Getty Images
Það var baulað á Kai Havertz, tvítugan leikmann Bayer Leverkusen, þegar hann fór af velli í 1-0 tapi gegn Hertha Berlín á miðvikudag.
Havertz hefur ekki átt sérstakt tímabil til þessa, en Jonathan Tah, varnarmaður Leverkusen, er mjög óánægður með þá stuðningsmenn sem bauluðu.
„Mér finnst þetta ömurlegt," sagði Tah spurður út í baulið í samtali við Kicker.
„Það hjálpar honum ekki, það er ekki hvatning fyrir hann. Hann er tvítugur. Við verðum að hjálpa honum í búningsklefanum."
Havertz hefur verið orðaður við stærri félög. Annar liðsfélagi hans, Sven Bender, segir: „Það er eðlilegt fyrir hann að hugsa um framtíðina. Þú færð ekki á tilfinninguna að hausinn á honum sé kominn eitthvað annað. Þetta er ekki auðvelt fyrir strákinn."