Víkingur Ólafsvík fær sóknarleikmann frá Spáni - Fyrirliðinn framlengir (Staðfest)

Arnór Siggeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Siggeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík hafnaði í fimmta sæti 2. deildarinnar síðasta sumar og félagið er að setja saman leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil.
Félagið hefur fengið til sín spænsk marokkóskan sóknarleikmann, Ibrahim Boulahya El Miri.
„Ibrahim er 26 ára gamall og getur spilað sem framherji og úti á kanti. Hann er teknískur leikmaður með gott markanef. Við bjóðum Ibrahim velkominn til Ólafsvíkur og væntum mikils af honum næsta sumar," segir í tilkynningu félagsins.

Þá hefur miðjumaðurinn Arnór Siggeirsson gert nýjan samning við Víking út næsta tímabil. Arnór er 25 ára og var gerður að fyrirliða fyrir síðasta tímabil en hann er á leið inn í sitt þriðja tímabil með félaginu.
Fleiri fregna er svo að vænta af leikmannamálum Víkings á næstu dögum.
Fleiri fregna er svo að vænta af leikmannamálum Víkings á næstu dögum.