21.01.20 - 10:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Moses mættur til Ítalíu

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Victor Moses er kominn til Ítalíu og fer í dag í læknisskoðun hjá Inter Milan.
Væng-bakvörðurinn lenti í Mílanó í gærkvöldi samkvæmt heimildum Sky Italy.
Samkomulag liggur fyrir milli Chelsea og Inter um kaup Inter á Moses. Moses hefur verið á láni hjá Fenerbahce frá Chelse en einungis leikið sex leiki vegna meiðsla í tyrknesku deildinni.
Antonio Conte, stjóri Inter, þekkir vel til Moses því hann spilaði mikið í hægri-vægnbakvarðarstöðunni þegar Conte stýrði Chelsea til sigurs í ensku deildinni tímabilið 2016-17.