Napoli í viðræðum um Garnacho - Villa hafnaði tilboði West Ham í Duran - Vlahovic orðaður við Chelsea
   þri 21. janúar 2025 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Okkur fannst mikilvægara að hann fengi mínútur heldur en úrslit þessa leiks eða þessi sekt"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli í síðustu viku að Víkingur tefldi fram ólöglegum leikmanni þegar liðið mætti KR í Reykjavíkurmótinu. KR vann leikinn og því þurfti ekki að aðhafast neitt í úrslitum leiksins en Víkingur fékk hins vegar 60 þúsund króna sekt fyrir að tefla fram Stíg Dilján Þórðarsyni í leiknum.

Stígur er orðinn leikmaður Víkings sem keypti hann frá Triestina á Ítalíu en hann fær ekki leikheimild fyrr en 5. febrúar.

„Við álitum að þetta væri sekt sem við værum tilbúnir að taka á okkur fyrir það að hann fengi mínútur. Hann er gríðarlega efnilegur leikmaður og við ætlum honum stórt hlutverk strax á næsta ári. Okkur fannst mikilvægara að hann fengi mínútur heldur en úrslit þessa leiks eða þessi sekt," sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, um ákvörðunina að tefla Stíg fram.

Stígur er 19 ára og hefur verið erlendis undanfarin tvö og hálft tímabil. Fyrst var han hjá Benfica í tvö ár og svo samdi hann við Triestina síðasta sumar en þar gengu hlutirnir ekki upp.
Kári Árna: Týndu synirnir eru komnir aftur heim
Athugasemdir
banner
banner
banner