Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 12:58
Brynjar Ingi Erluson
Hópur Mexíkó gegn Íslandi: Allir spila í heimalandinu
Icelandair
Javier Aguirre er búinn að velja leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Íslandi
Javier Aguirre er búinn að velja leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Íslandi
Mynd: EPA
Efrain Alvarez er í hópnum
Efrain Alvarez er í hópnum
Mynd: EPA
Javier Agurre, þjálfari mexíkóska landsliðsins, hefur valið leikmannahóp sinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem fer fram aðfaranótt 26. febrúar næstkomandi, en allir spila í heimalandinu.

Þar sem þetta er ekki viðurkenndir landsleikjagluggi mun Aguirre fá tækifæri til þess að skoða leikmenn úr mexíkósku úrvalsdeildinni svona eins og með Arnar Gunnlaugsson sem valdi hálfgert landslið Bestu deildarinnar auk þeirra Kolbeins Þórðarsonar sem er hjá Gautaborg og Jóhann Berg Guðmundsson sem rifti nýlega við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Mexíkóska félagið Chivas á flesta fulltrúa í hópnum eða sjö talsins.

Í hópnum eru nokkrir spennandi leikmenn þar á meðal Efrain Alvarez, sem var eitt sin á mála hjá Los Angeles Galaxy og á lista Guardian yfir efnilegustu leikmenn heims árið 2019, og þeir Richard Ledezma og Brian Gutierrez sem eru að gera sér vonir um að komast á HM í sumar.

Hópurinn í heild sinni:

Markverðir:
Luis Ángel Malagón (América)
Raúl Rangel (Chivas)
Carlos Acevedo (Santos)

Varnarmenn:
Richard Ledezma (Chivas)
Jesús Garza (Tigres)
Víctor Guzmán (Rayados)
Israel Reyes (América)
Everardo López (Toluca)
Jesús Gallardo (Toluca)
Diego Campillo (Chivas)

Miðjumenn:
Erik Lira (Cruz Azul)
Erick Sánchez (América)
Carlos Rodríguez (Cruz Azul)
Denzell García (FC Juárez)
Marcel Ruiz (Toluca)
Brian Gutiérrez (Chivas)
Alexis Gutiérrez (América)

Sóknarmenn:
Efraín Álvarez (Chivas)
Roberto Alvarado (Chivas)
Guillermo Martínez (Pumas)
Armando González (Chivas)
Athugasemdir
banner
banner