Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. mars 2021 07:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikar kvenna: Freyja Karín setti þrennu gegn Hömrunum
Freyja í leik gegn Hömrunum í fyrra
Freyja í leik gegn Hömrunum í fyrra
Mynd: Fjarðabyggð
Hamrarnir 0 - 4 Fjarðabyg/Höttur/Leiknir
0-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('22)
0-2 Hafdís Ágústsdóttir ('45)
0-3 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('53)
0-4 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('77)

Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir, hér eftir F/H/L, vann 0-4 útisigur á Hömrunum í riðli 2 í C-deild Lengjubikars kvenna í gær.

Freyja Karín skoraði þrennu fyrir F/H/L og Hafdís skoraði eitt.

F/H/L er með fullt hús eftir tvo leiki. Völsungur hefur ekki hafið leik í riðlinum en F/H/L hefur lagt Sindra og Hamrana til þessa.

Næsti leikur í riðlinum er um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner