Tufa: Þessi sigur var fyrir stuðningsmenn okkar
Auglýsing

Tufa var sáttur með stigin þrjú

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tufa var sáttur með stigin þrjú

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Ég er bara ánægður með stigin þrjú. Við áttum bara að klára þennan leik miklu fyrr. Áttum 3 dauðafæri í fyrri hálfleik og stangarskot í stöðunni 2-0. Áttum bara að ganga frá leiknum“ Sagði Tufa þjálfari KA-manna eftir 2-1 sigur á Huginn í dag
„Það var rosalega mikilvægt að koma að marki strax í byrjun seinni hálfeiks. Eins og ég sagði áðan fengum við fullt af færum í fyrri hálfleik. En fótboltinn er þannig íþrótt að maður getur ekki valið mómentin þegar mörkin koma“
Tufa sagði það mikilvægt að ná sigri strax eftir skellinn á Ásvöllum. „Þessi sigur var fyrst og fremst fyrir stuðningsmenn okkar sem voru að styðja okkur líka fyrir sunnan. Við vildum sýna okkar rétta andlit og þetta var bara flottur sigur hjá strákunum mínum.“
Nánar er rætt við Tufa í spilaranum fyrir ofan