Spænska félagið Barcelona hefur mikinn áhuga á því að fá Sandro Tonali, miðjumann Brescia á Ítalíu. Þetta kemur fram á spænska miðlinum Sport.es.
Inter leiðir baráttuna um Tonali en þessi tvítugi miðjumaður hefur heillað á fyrsta tímabilinu sínu í Seríu með nýliðum Brescia.
Mörg stórlið hafa áhuga á honum og er Barcelona eitt þeirra en spænska félagið ætlar sér að versla nokkra leikmenn úr Seríu A í sumar.
Lautaro Martinez, framherji Inter, er efstur á lista en félagið vill einnig fá Miralem Pjanic og Tonali.
Tonali verður samningslaus á næsta ári en Brescia vill 50 milljónir evra fyrir leikmanninn, upphæð sem Barcelona er ekki tilbúið til að greiða í augnablikinu.
Athugasemdir