Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. maí 2021 15:20
Elvar Geir Magnússon
Heimild: KSÍ 
U19 landsliðið sem mætir Færeyjum í tveimur vináttuleikjum
Logi Hrafn Róbertsson í FH. Hafnarfjarðarliðið á flesta fulltrúa í hópnum.
Logi Hrafn Róbertsson í FH. Hafnarfjarðarliðið á flesta fulltrúa í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U19 landsliðsins.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U19 landsliðsins.
Mynd: Raggi Óla
U19 karla mætir U19 og U21 ára liðum Færeyja í tveimur vináttuleikjum í júní.

Liðið mætir U21 ára liði Færeyja 3. júní og hefst sá leikur kl. 16:30 að íslenskum tíma. U19 ára lið þjóðanna mætast svo 6. júní og hefst sá leikur kl. 14:00 að íslenskum tíma.

Báðir leikirnir fara fram í Svangaskarði. Leikirnir verða fyrstu leikir liðsins undir stjórn Ólafs Inga Skúlasonar.

U19 karla hefur mætt U19 ára liði Færeyja 22 sinnum. Ísland hefur unnið 17 leiki, þrír hafa endað með jafntefli og tvisvar hafa Færeyjar unnið. Liðin mættust síðast í þessum aldursflokki 14. nóvember 2017 í undankeppni EM 2018. Ísland vann þann leik 2-1 og voru það Kristófer Ingi Kristinsson og Stefan Alexander Ljubicic sem skoruðu mörk liðsins í leiknum.

Hér að neðan má sjá hóp Íslands fyrir leikina tvo en FH á flesta fulltrúa, þrjá talsins.

Hópurinn
Orri Steinn Óskarsson | FC Köbenhavn
Danijel Dejan Djuric | FC Midtjylland
Dagur Þór Hafþórsson | FH
Logi Hrafn Róbertsson | FH
Úlfur Ágúst Björnsson | FH
Hilmir Rafn Mikaelsson | Fjölnir
Lúkas Logi Heimisson | Fjölnir
Óskar Borgþórsson | Fylkir
Þorsteinn Aron Antonsson | Fulham
Kjartan Kári Halldórsson | Grótta
Kári Daníel Alexandersson | Grótta
Ólafur Örn Ásgeirsson | HK
Guðmundur Tyrfingsson | ÍA
Andi Hoti | Leiknir R.
Jón Vignir Pétursson | Selfoss
Ísak Andri Sigurgeirsson | Stjarnan
Óli Valur Ómarsson | Stjarnan
Kristófer Jónsson | Valur
Jakob Franz Pálsson | Venezia
Pálmi Rafn Arinbjörnsson | Wolves
Athugasemdir
banner
banner