Samkvæmt heimildum Fabrizio Romano hefur Kylian Mbappe tekið ákvörðun um það hvort hann ætli að vera áfram hjá PSG eða færa sig yfir til Real Madrid.
Hann hafði fengið samningstilboð frá báðum félögum en nú er sagt að hann hafi hringt í forseta Real Madrid til að tilkynna honum að hann ætli sér að vera áfram í Frakklandi.
Mbappe hefur verið lengi undir smásjá spænska félagsins en PSG neitaði 170 milljón punda tilboði Real í leikmanninn síðasta sumar.
Mbappe er 23 ára en hann hefur verið alveg magnaður hjá PSG. Hann er með 168 mörk í 216 leikjum fyrir félagið.
🚨 Kylian Mbappé will STAY at Paris Saint-Germain. He’s definitely not joining Real Madrid this summer, the final decision has been made and communicated to Florentino Perez. 🤝 #Mbappé
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 21, 2022
𝐇𝐄𝐑𝐄 𝐖𝐄 𝐆𝐎.
More to follow - Kylian stays. #PSG pic.twitter.com/rUkFk8jmao