Jóhann Ægir Arnarsson meiddist illa í leik Njarðvíkur og HK á mánudagskvöld. Eftir segulómskoðun kom í ljós a'krossband í hné er slitið, rifa er í liðþófa og hann er með beinmar.
Þetta er í annað sinn sem Jóhann Ægir slítur krossband en það gerðist í fyrstas inn sumarið 2023 en þá var hann einungis sjö mánuði að snúa aftur.
Fótbolti.net ræddi stuttlega við kappann í dag.
Þetta er í annað sinn sem Jóhann Ægir slítur krossband en það gerðist í fyrstas inn sumarið 2023 en þá var hann einungis sjö mánuði að snúa aftur.
Fótbolti.net ræddi stuttlega við kappann í dag.
„Næst á dagskrá er aðgerð vonandi í júní. Svo er næsta sem ég horfi í að spila í júní 2027. Ég ætla taka mér tólf mánuði í þetta skiptið, ekki sjö eins og síðast," segir Jóhann Ægir sem er ákveðinn í að ætla snúa aftur á völlinn.
En kom hugsunin um að ferlinum væri lokið aldrei upp?
„Jú, hún kom upp á meðan ég lá í grasinu í Kórnum. En ég verð að ná að verða fyrirliði FH, það draumamarkmiðið," segir Jóhann Ægir sem er uppaliinn hjá FH og er á láni hjá Njarðvík frá uppeldisfélaginu.




