Jóhann sleit krossband og reif liðþófa

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Kári Snorrason

Jóhann Ægir Arnarsson verður ekki meira með Njarðvík á leiktíðinni en hann verður frá keppni í mjög langan tíma eftir alvarleg meiðsli sem hann hlaut í tapleik gegn HK í Kórnum í gær.
Leikurinn var stöðvaður á 68. mínútu vegna meiðslanna og var stopp í hálftíma meðan beðið var eftir sjúkrabíl þar sem enginn þorði að hreyfa við Jóhanni þar sem hann lá í jörðinni með hnéskelina á röngum stað.

TENGT EFNI
Loksins kominn heim af slysó - „Hnéskelin var bara alls ekki á réttum stað"
Jóhann Ægir fór í segulómskoðun og hefur komið í ljós að hann er með slitið krossband, rifu í liðþófa og beinmar. Þetta eru hrikalegar fréttir fyrir Jóhann og Njarðvíkurliðið en Jóhann leikur fyrir liðið á lánssamningi frá FH.

„Við höfum fulla trú á að Jóhann tækli þetta verkefni vel og sendum við honum baráttu- og bata kveðjur!" segir í tilkynningu frá Njarðvík.
„Þá vill Knattspyrnudeild Njarðvíkur einnig koma þökkum til HK-inga og allra þeirra sem hjálpuðu til við að hlúa að Jóhanni í gærkvöldi."

TENGT EFNI
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann