Fotbolti.net
19.05.26 - 01:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Loksins kominn heim af slysó - „Hnéskelin var bara alls ekki á réttum stað"

Loksins kominn heim af slysó - „Hnéskelin var bara alls ekki á réttum stað"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ægir Arnarsson meiddist illa á hné í leik HK og Njarðvíkur í dag. Varnarmaðurinn, sem er á láni hjá Njarðvík frá FH, fór með sjúkrabíl úr Kórnum í kvöld, var keyrður út á börum eftir að hafa legið í um hálftíma á vellinum.

Jóhann Ægir var á leið heim af bráðamóttökunni þegar Fótbolti.net ræddi við hann.
Lengjudeildin: Alvarleg meiðsli skyggðu á sigur HK
TENGT EFNI

Lengjudeildin: Alvarleg meiðsli skyggðu á sigur HK

„Staðan á mér er ekki nógu goð, ég allavega sá hnéskelina úr lið og fann fyrir smelli í hnénu þannig að ég vona bara innilega að þetta sé allt annað en krossbandið aftur," segir Jóhann Ægir sem sleit krossband sumarið 2023.

En hvað gerðist?

„Ég var bara að horfa upp og steig í löppina og þá kemur svakalegur verkur og smellur, ég leit á það og hnéskelin var bara alls ekki á réttum stað. Svo gat ég ekki hreyft mig fyrir sársauka í 30 mín á meðan ég beið eftir sjúkrabílnum."

Jóhann Ægir var í tæpa fjóra tíma á bráðamóttökunni og kom í ljós að hann væri ekki brotinn. Hann er það bólginn á hnénu að ekki er hægt að kanna stöðuna á krossbandinu og þarf hann að fara í myndatöku á næstu dögum til að vita meira um meiðslin.
Loksins kominn heim af slysó - „Hnéskelin var bara alls ekki á réttum stað"
Canon

Mynd: Kári Snorrason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.