Sóknarmaðurinn Tammy Abraham hefur færst aftar í goggunarröðinni hjá Thomas Tuchel og gæti yfirgefið Chelsea.
Ýmis úrvalsdeildarfélög hafa sýnt Abraham áhuga, þar á meðal Tottenham og West Ham.
The Sun segir að Arsenal sé hinsvegar líklegt til að fá þennan 23 ára leikmann.
Ýmis úrvalsdeildarfélög hafa sýnt Abraham áhuga, þar á meðal Tottenham og West Ham.
The Sun segir að Arsenal sé hinsvegar líklegt til að fá þennan 23 ára leikmann.
Samkvæmt frétt blaðsins er Chelsea tilbúið að lána hann í eitt ár til Arsenal ef félagið skuldbindur sig svo til að kaupa hann á 40 milljónir punda 2022.
Arsenal myndi borga laun Abraham að öllu leyti en þessi leikmaður ólst upp sem stuðningsmaður Arsenal.
Athugasemdir