Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 21. júlí 2022 11:30
Elvar Geir Magnússon
Bassey til Ajax (Staðfest)
Calvin Bassey (til hægri).
Calvin Bassey (til hægri).
Mynd: EPA
Nígeríski varnarmaðurinn Calvin Bassey er genginn í raðir Hollandsmeistara Ajax frá Rangers í Glasgow.

Kaupverðið er 19,6 milljónir punda sem gerir hann að dýrustu sölu í sögu skoska stórliðsins.

Bassey er 22 ára og hefur skrifað undir fimm ára samning við Ajax. Kaupverðið gæti hækkað um 3 milljónir punda í viðbót eftir ákvæðum.

Bassey kom til Rangers frá Leicester 2020 og var lykilmaður hjá Rangers á síðasta tímabili. Rangers endaði í öðru sæti á eftir Celtic en vann skoska bikarinn.
Athugasemdir
banner
banner