Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 21. júlí 2022 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
EM kvenna í dag - 8 liða úrslitin komin á fulla ferð
Mynd: EPA
8 liða úrslitin á EM kvenna halda áfram í dag en heimakonur frá Englandi komust áfram í gær með sigri á Spáni eftir framlengdan leik.

Í kvöld mætast Þýskaland og Austurríki. Þýskaland vann B-riðilinn nokkuð örugglega en liðið var með fullt hús stiga og markatöluna 9-0 í þessum þremur leikjum. Spánverjar voru í 2. sæti riðilsins með 6 stig.

Austurríki var í 2. sæti A-riðils með 6 stig. Eina tapið kom í fyrstu umferð, 1-0 gegn Englandi.

Það var ekki mikið skorað í leikjum Austurríkis en liðið endaði með markatöluna 3-1.

EUROPEAN CHAMPIONSHIP: Playoffs - Women
19:00 Þýskaland - Austurríki


Athugasemdir
banner
banner