Samira Suleman er gengin til liðs við ÍA sem leikur í 2. deild kvenna.
Hún kemur frá Sindra sem er einnig í 2. deild. Hún er sóknarmaður og er mikil markamaskína. Hún skoraði sjö mörk í átta leikjum fyrir Sindra í ár.
Suleman kemur frá Gana en hún kom fyrst hingað til lands árið 2015 til að leika með Víkingi Ólafsvík. Hún hefur skorað 62 mörk í 114 leikjum í deildakeppni á Íslandi.
ÍA er í 5. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 6 leiki.
Athugasemdir