Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 21. júlí 2022 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tuchel hissa á Werner - „Væri hamingjusamasta manneskja í heimi"
Mynd: EPA
Raheem Sterling gekk til liðs við Chelsea í sumar frá Manchester City.

Það er meiri samkeppni fyrir Timo Werner sem hefur ekki alveg náð sér á strik hjá Chelsea síðan hann kom til félagsins frá RB Leipzig árið 2020.

„Fyrst og fremst er aðal atriðið að ég er ánægður. Ég er ánægður þegar ég spila og skora mörk, það er staðreynd, ég gæti verið ánægður hvar sem er," sagði Werner.

„Það er ljóst að ég vil spila meira til að vera í góðu standi fyrir HM og til að hafa tækifæri til að spila þar."

Þessi ummæli koma Tuchel í opna skjöldu.

„Ég er hissa, ég yrði ánægður sem ungur maður á samning hjá Chelsea. Ég væri ein hamingjusamasta manneskja í heimi," sagði Tuchel.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner