Selfoss mætti í heimsókn í Mosfellsbæ og mættu Aftureldingu. Afturelding gerði sér lítið fyrir og skoruðu 9 mörk á Selfyssinga í stórsigri. Dean Martin mætti í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Afturelding 9 - 0 Selfoss
„Þetta er auðvitað sjokk en bara til hamingju Afturelding, þeir spiluðu mjög vel í dag, þeir voru betri á öllum sviðum í dag.
Skellur að fá á sig mark eftir tvær mínútur, þú sást bara að leikplanið fór út um gluggann strax. Við vorum ekki að spila sem lið."
Dean var spurður hvernig svona skellur hefur áhrif á liðið
„Stór spurning, 9-0 menn hafa ekki lent í þessu áður. Erfitt að svara hvernig þetta hefur áhrif. Fyrst og fremst mætum við á æfingar og við leysum þetta."
Selfoss hefur tapað 5 leikjum í röð
„Það þarf að laga hugarfarið okkar, það er bara svoleiðis. Stoppa og senda boltann það er ekki flóknara en það "back to basics". Við þurfum að spila sem solid lið en ekki sem einstaklingar."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir






















