Ben Foster leggur hanskana á hilluna í annað sinn (Staðfest)

Ben Foster.

Mynd: Getty Images

Ben Foster.

Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Ben Foster hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna, aftur.
Tímabilið er nýbyrjað en Foster ákvað að hætta eftir síðasta deildarleik Wrexham sem endaði með 5-5 jafntefli gegn Swindon.
„Sannleikurinn er sá að frammistaða mín hefur ekki verið sú sem ég krefst af sjálfum mér og mér finnst núna vera rétti tíminn til að hætta," sagði Foster en hann segir að þessi ákvörðun gefi félaginu tíma til að finna annan markvörð áður en glugginn lokar.
„Wrexham mun alltaf eiga stað í hjarta mínu."
Foster, sem er fertugur, lagði hanskana á hilluna fyrst sumarið 2022. Hann sneri aftur í mars á þessu ári og hjálpaði Wrexham, sem er í eigu Hollywood leikara, og hjálpaði liðinu að komast upp í D-deild Englands.
Foster er alinn upp hjá Racing Club Warwick, fór svo til Stoke og í kjölfarið til Manchester United þar sem hann lék tólf deildarleiki á fimm ára tímabili. Hann hefur einnig leikið með Watford, Birmingham og WBA í úrvalsdeildinni.