Hulda Ósk framlengir við Þór/KA - Karen María kemur alfarið yfir (Staðfest)

Hulda Ósk hefur átt gott tímabil með Þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA hefur gefið það út að Hulda Ósk Jónsdóttir sé búin að skrifa undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2025.
Hulda Ósk hefur átt gott tímabil með Þór/KA en hún er búin að skora fjögur mörk í 17 deildarleikjum fyrir liðið sem er búið að tryggja sér sæti á meðal efstu sex liðanna í Bestu deildinni.
Hulda Ósk er á meðal reyndustu leikmanna Þórs/KA og sá leikmaður liðsins sem spilað hefur flesta meistaraflokksleiki hér á landi, alls 243 leiki í mótum á vegum KSÍ, ásamt fimm Evrópuleikjum. Hún á að baki 145 leiki í efstu deild.
Þá hefur félagið tilkynnt um það að Karen María Sigurgeirsdóttir sé komin alfarið til félagsins eftir að hafa verið á láni frá Breiðabliki á þessari leiktíð.
Karen María hóf meistaraflokksferilinn með Þór/KA og spilaði sína fyrstu leiki í efstu deild meistarasumarið 2017. Að loknu tímabilinu 2021 skipti hún yfir í Breiðablik og spilaði með Kópavogsliðinu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og svo áfram tímabilið 2022, þar til hún var lánuð aftur til Þórs/KA í vor. Karen María getur leyst margar stöður á vellinum en hún hefur verið að spila framarlega með Þór/KA.
Áður hafði verið tilkynnt um það að Margrét Árnadóttir væri komin aftur til félagsins eftir dvöl á Ítalíu, hjá Parma.

Karen María Sigurgeirsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð