Fotbolti.net
21.08.23 - 14:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skotmark FH og Grindavíkur fór til El Paso (Staðfest)

Petur Knudsen og Freyr Alexandersson, þjálfari Peturs hjá Lyngby.

Petur Knudsen og Freyr Alexandersson, þjálfari Peturs hjá Lyngby.

Canon

Mynd: Getty Images

Færeyski landsliðsmaðurinn Petur Knudsen samdi í síðasta mánuði við bandaríska félagið El Paso. Hann skrifaðu undir samning sem gildir út árið. Hann var svo tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins fyrir helgi.

Knudsen er 25 ára sóknarmaður sem rann út á samningi hjá Lyngby í sumar. FH reyndi að fá hann í sínar raðir en Færeyingurinn vildi fara í sterkari deild. Grindavík reyndi þá einnig að fá hann í sínar raðir.
El Paso er í næst efstu deild í Bandaríkjunum, deildinni sem er fyrir neðan MLS. Liðin í deildinni geta þó ekki unnið sér sæti í MLS deildinni. Þetta er sama deild og Óttar Magnús Karlsson lék í á síðasta ári þegar hann var með Oakland Roots.

Knudsen á að baki tíu leiki með færeyska landsliðinu. Hann er sonur Jens Martin Knudsen sem lék með Leiftri í kringum aldamótin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.