Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, getur jafnað leikjamet Paolo Maldini í Serie A deildinni í dag.
Talið er líklegt að Buffon verði í byrjunarliði Juventus gegn Verona og mun hann þá spila sinn 902. leik fyrir Juventus.
Þannig myndi hann jafna Maldini sem spilaði 902 leiki í treyju AC Milan.
Þetta er 641. leikur Buffon í Serie A og þar nálgast hann annað leikjamet Maldini óðfluga. Varnarmaðurinn fyrrverandi lék 647 leiki í Serie A.
Buffon er 41 árs og verður 42 ára í janúar. Í desember getur hann orðið þriðji elsti leikmaður í sögu Serie A.
Athugasemdir