Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. september 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Godin skiptir yfir til Cagliari í vikunni
Mynd: Getty Images
Úrúgvæski varnarmaðurinn Diego Godin er að skipta yfir til Cagliari í ítalska boltanum eftir eitt ár hjá Inter.

Godin er 34 ára gamall og gekk í raðir Inter í fyrra eftir níu ára dvöl hjá Atletico Madrid.

Í heildina spilaði hann 36 leiki fyrir Inter á síðustu leiktíð en félagið telur sig ekki hafa not fyrir þessa goðsögn lengur.

Godin, sem á 135 leiki að baki fyrir Úrúgvæ, mun ganga beint inn í byrjunarliðið hjá Cagliari þar sem hann gæti spilað við hlið Ragnar Klavan fyrrum varnarmanns Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner