Íslenska landsliðið skipað stúlkum 19 ára og yngri lýkur leik í undankeppni HM 2022 í Serbíu í dag.
Liðin eru að spila úrslitaleik um hvort liðið fellur. Undankeppnin er í tveimur hlutum, en það lið sem endar í neðsta sæti síns riðils í A deild fellur niður í B deild fyrir næsta hluta undankeppninnar.
Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Svíþjóð 2-1 og öðrum leik gegn Frökkum með tveimur mörkum gegn engu.
Svíþjóð og Frakkland hafa tryggt sér efstu tvö sætin en Ísland er í 3. sæti með ekkert stig eins og Serbía sem er í 4. sæti.
Leikurinn hefst kl 11:00.
Athugasemdir