Klopp: Konate hefði getað verið fokinn út af

Jürgen Klopp

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Jürgen Klopp

Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, var sáttur með 2-0 sigur liðsins á Everton á Anfield í dag og viðurkenni þá að Ibrahima Konate hefði getað fokið af velli í síðari hálfleiknum.
Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool í leiknum, fyrra úr víti og það síðara seint í uppbótartíma eftir góða skyndisókn.
„Ég var rosalega hrifinn af þessu. Þetta er nágrannaslagur og þú þarft að íhuga ýmislegt. Ef við hefðum átt betri úrslitasendingar í fyrri hálfleik þá hefðum við verið 3-0 yfir. Skyndisóknirnar og umbreytingin í sóknarleiknum hefði átt að færa okkur fleiri mörk, en gerði ekki.“
„Við leyfðum þeim ekki að gera það sem þeir vildu gera. Við vorum ákveðnir í baráttum, en þetta er samt erfitt því þeir voru með lágvörn, náðu að aðlagast og mættu styrkleikum okkar.“
Ashley Young var rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks, en það gerði hlutina aðeins flóknari.
„Það voru mörg augnablik sem ég var hrifinn af og síðan hafði rauða spjaldið mikil áhrif á leikinn. Ég vildi að við héldum ró og myndum husna það að við værum manni fleiri. Það er rosalega erfitt því þá þarftu að búa til eitthvað í hvert sinn sem þú ert með boltann og það tók okkur smá tíma áður en við sköpuðum færi.“
Ibrahima Konate var á gulu spjaldi er hann braut á Beto, en hann var stálheppinn að fá ekki að líta rauða spjaldið. Klopp þurfti því að taka hann af velli.
„Síðan kom vítaspyrnan. Ég horfði á þetta aftur og þetta var klárt víti, en Ibrahima hefði líka getað fokið af velli. Það hefði getað gerst og augljóslega tókum við hann af velli, en eftir það vorum við nokkuð áreiðanlegir og þéttir,“ sagði Klopp.