Sjáðu atvikið: Konaté heppinn að sleppa við seinna gula spjaldið

Mynd: Liverpool

Mynd: Liverpool
Miðvörðurinn Ibrahima Konaté var heppinn að sleppa við að vera rekinn af velli í 2-0 sigri Liverpool í grannaslag gegn Everton í dag.
Konate var á gulu spjaldi þegar hann stöðvaði skyndisókn hjá Everton með broti á Beto, sem átti sér stað víðsfjarri boltanum.
Everton var leikmanni færri þegar brotið átti sér stað, eftir að Ashley Young var rekinn útaf með tvö gul spjöld í fyrri hálfleik.
Ellefu leikmenn Liverpool höfðu að lokum betur gegn tíu leikmönnum Everton eftir að Mohamed Salah skoraði tvennu á lokakaflanum.
Jürgen Klopp og Sean Dyche, knattspyrnustjórar Liverpool og Everton, tjáðu sig um atvikið að leikslokum og voru sammála um að Konate hafi átt að fjúka útaf.

Konate on a yellow card pulling back Beto with no yellow given. Klopp subbed him off minutes later.
byu/Sal21G insoccer