Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 21. desember 2020 11:10
Magnús Már Einarsson
Peddi tekur við Dalvík/Reyni (Staðfest)
Jói Hreiðars og Moli aðstoðarþjálfarar
Pétur Heiðar Kristjánsson
Pétur Heiðar Kristjánsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir hefur ráðið Pétur Heiðar Kristjánsson, Pedda, sem þjálfara liðsins til næstu tveggja ára. Dalvík/Reynir féll úr 2. deildinni í sumar og spilar í 3. deild á næsta ári.

Peddi var spilandi þjálfari hjá Dalvík/Reyni árin 2014 og 2015 en undanfarin ár hefur hann meðal annars starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks KA sem og þjálfari yngri flokka.

Jóhann Hreiðarsson hefur einnig verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari liðsins. Jóa þarf vart að kynna fyrir Dalvíkingum en hann kom í þjálfarateymi Dalvíkur/Reynis fyrir síðasta tímabil. Jói hefur víðtæka reynslu úr þjálfun og góða þekkingu á neðri deildum, en Jói var þjálfari Dalvíkur/Reynis tímabilið 2009 og svo aðstoðarþjálfari nokkur tímabil þar á eftir.

Siguróli Kristjánsson, Moli, er nýr aðstoðarmaður í teyminu og mun starfa sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar.

Moli er gríðarlega reyndur þjálfari og var frábær leikmaður á sínum tíma. Undanfarin ár hefur hann mest starfað í þjálfarateymi Þór/KA en einnig hefur hann verið í spennandi verkefnum innan KSÍ. Hann mun starfa sem ráðgjafi knattspyrnudeildar í heild, jafnt fyrir þjálfarana, leikmenn og stjórnarmenn félagsins.

„Það ríkir mikil ánægja og spenna með nýtt þjálfarateymi félagsins. Við erum að fara af stað með nýja nálgun á ákveðin verkefni og vonandi mun það skila okkur á þann stað sem við teljum okkur eiga heima á. Síðasta tímabil voru mikil vonbrigði og félagið dregur lærdóm af því og við komum tvíelfdir til leiks. Á næstu dögum fáum við vonandi fleiri jákvæðar fréttir og er undirbúningur næsta tímabils í fullum gangi,“ sagði Stefán Garðar Níelsson formaður Knattspyrndeildar Dalvíkur.
Athugasemdir
banner
banner