Fotbolti.net
22.01.20 - 22:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Vandræðalegt tap United gegn Burnley

England: Vandræðalegt tap United gegn Burnley
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester Utd 0 - 2 Burnley
0-1 Chris Wood ('39 )
0-2 Jay Rodriguez ('56 )

Manchester United tók á móti Burnley í lokaleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Burnley sigraði Leicester á sunnudag og seinna þann dag tapaði United gegn Liverpool á útivelli.
Manchester United var talsvert meira með boltann í kvöld en gekk ekkert að koma boltanum í netið. Chris Wood kom Burnley yfir með marki eftir fast leikatriði á 39. mínútu.

Ben Mee skallaði þá boltann áfram eftir aukaspyrnu og Wood var fyrstur að átta sig. Jay Rodriguez kom þá Burnley í 0-2 á 56. mínútu þegar hann skoraði með frábæru skoti, sláin inn.

United sótti og sótti en boltinn vildi ekki í netið. Nick Pope stóð fyrir sínu í marki Burnley en United þarf að gera talsvert betur í sóknarleik sínum. Stuðningsmenn United kölluðu í kvöld eftir því að fá United liðið sitt aftur og ólíklegt verður að teljast að þetta hafi verið það sem þeir vildu sjá.

Burnley virkaði sjaldan ef einhvern tímann líklegt til að fá á sig mark í kvöld. Annar sigur liðsins í röð staðreynd og þetta var annar deildarleikurinn í röð sem United tapar.
England: Vandræðalegt tap United gegn Burnley
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.