Fotbolti.net
22.01.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Felipe Anderson frá í mánuð

Felipe Anderson frá í mánuð
Canon

Mynd: Getty Images

Felipe Anderson verður frá í mánuð vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Sheffield United þann 10. janúar síðastliðinn.
David Moyes, þjálfari West Ham, sagði frá þessu á fréttamannafundi. „Felipe er að glíma við vandamál í bakinu. Við höldum að hann verði frá í fjórar vikur."

Anderson er 26 ára gamall brasilískur kantmaður. Á þessu tímabili hefur hann leikið 22 leiki í öllum keppnum og aðeins skorað eitt mark.

Moyes er nú þegar án leikmanna eins og Ryan Fredericks og Lukasz Fabianski sem eru meiddir. Þó getur hann verið ánægður með það að Michail Antonio er að snúa aftur til baka eftir meiðsli.

Það er nóg að gera hjá West Ham næstu vikurnar, en liðið mætir Leicester á útivelli í kvöld. West Ham er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.