Andrea Mist Pálsdóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik en hún kemur til félagsins frá FH.
Þetta staðfesti FH í kvöld en Andrea skrifar undir lánssamning við Blika og mun leika með liðinu í ár.
Um er að ræða afar efnilegan miðjumann sem á að baki þrjá A-landsleiki og 30 leiki fyrir yngri landsliðin.
Andrea var lykilmaður á miðju FH í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar og er missirinn því mikill fyrir liðið.
Andrea er uppalinn hjá Þór/KA en gekk í raðir FH árið 2020. Hún er fædd árið 1998.
Athugasemdir