Jökull Andrésson hefur skrifað undir samning við Morecambe á Englandi en þetta var staðfest í kvöld.
Þessi efnilegi markvörður kemur til Morecambe á neyðarláni frá Reading sem endist í aðeins sjö daga.
Jökull verður í hóp á morgun þegar Morecambe spilar við Colchester í þriðju efstu deild Englands.
Um er að ræða 19 ára gamlan efnilegan markmann sem spilaði með Exeter á neyðarláni í október og lék einnig fyrir Hungerford.
Jökull hefur spilað með Reading síðan 2017 og á að baki fjóra landsleiki fyrir íslenska U19 landsliðið.
Athugasemdir