Fotbolti.net
22.01.21 - 11:17
Elvar Geir Magnússon

Markvörðurinn Mat Ryan til Arsenal (Staðfest)

Mat Ryan er kominn í Arsenal.

Mat Ryan er kominn í Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Mat Ryan hefur gengið í raðir Arsenal á lánssamningi frá Brighton & Hove Albion út tímabilið.

Reiknað er með að þetta þýði það að Rúnar Alex Rúnarsson færist úr því að vera markvörður númer tvö hjá félaginu niður í að vera markvörður þrjú.

Mat Ryan er 28 ára og hefur spilað 59 landsleiki fyrir Ástralíu. Hann var aðalmarkvörður Brighton í þrjú og hálft ár, áður en Robert Sanchez tók stöðuna af honum í desember.
„Mat er reyndur markvörður sem hefur sannað sig í ensku úrvalsdeildinni. Hann mun styrkja okkar hóp með reynslu og þekkingu af því að spila á hæsta getustigi," segir Edu, yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.