Heimild: mbl.is
Sandra María Jessen greindi frá því á föstudag að hún ætti von á barni. Sandra er leikmaður Bayer Leverkusen í Þýskalandi og hefur verið hluti af íslenska landsliðinu. Sandra er 26 ára gömul og ræddi við mbl.is á dögunum. Hún á von á sér í lok ágúst og hefur ekkert leikið með Leverkusen á árinu.
„Ég hef ekkert æft af viti á árinu og ekkert spilað á árinu heldur. Ég lét forráðamenn félagsins vita um leið og ég vissi að ég væri barnshafandi en ég beið með að láta stelpurnar í liðinu vita þangað til fyrir tveimur vikum. Félagið hefur stutt mjög vel við bakið á mér og þjálfarinn vildi að ég myndi spila alveg fram á fimmta mánuð en fæðingarlæknirinn var ekki alveg á því," sagði Sandra við mbl.is.
Fær greitt fæðingarorlof - Velkomin aftur til Leverkusen
FIFA samþykkti nýlega nýja reglugerð um að atvinnukonur í knattspyrnu fái greitt fæðingarorlof þegar þær eignast börn.
„Sem betur fer eru komnar nýjar reglur hjá FIFA sem snúa að barneignum kvenna. Ég fæ því 70% af heildarlaunum mínum þegar orlofið byrjar og Leverkusen mun borga mér full laun á meðan ég er með samning við félagið en hann rennur út í sumar. Síðan tekur bara við fæðingarorlof en ég er velkomin aftur til félagsins ef barn og heilsa leyfa. Það er mjög gott að hafa þetta á bak við eyrað að maður sé áfram velkominn þarna," sagði Sandra.
Ákvörðun tekin með fótboltann til hliðsjónar
„Þetta var alls ekki planað og kom mjög óvænt upp. Ég og kærastinn minn ræddum alla möguleika í stöðunni og hvað væri skynsamlegast að gera með fótboltann til hliðsjónar. Við tókum þá sameiginlegu ákvörðun að eignast þetta barn og ef það er einhvern tímann góður tími þá er það núna þar sem Evrópumótinu var frestað um eitt ár," sagði Sandra við mbl.is.
Athugasemdir