Osasuna 0 - 2 Sevilla
0-1 Diego Carlos ('19 )
0-2 Luuk de Jong ('49 )
0-1 Diego Carlos ('19 )
0-2 Luuk de Jong ('49 )
Sevilla lagði Osasuna að velli, 2-0, í spænsku deildinni í kvöld en liðið er komið upp í 3. sæti deildarinnar með sigrinum.
Brasilíski varnarmaðurinn Diego Carlos kom Sevilla yfir með skalla eftir hornspyrnu á 19. mínútu leiksins.
Luuk de Jong bætti við öðru marki í upphafi síðari hálfleiks með skoti af stuttu færi eftir sendingu frá Munir.
Lokatölur 2-0 fyrir Sevilla sem er nú með 48 stig í 3. sæti deildarinnar, einu stigi á undan Barcelona sem er í fjórða sætinu.
Athugasemdir