Viðar Örn Kjartansson tvöfaldaði forystu Íslands gegn Andorra í kvöld. Viðar var kallaður inn í hópinn í vikunni en hann hafði áður gefið út að hann ætlaði að taka sér frí frá landsliðsverkefnum.
Kjartan Henry Finnbogason var augljóslega ekki sáttur við endurkomu Viðars og setti meðal annars inn færslu með mynd af broskalli með rennilás fyrir munninn.
Viðar fagnaði marki sínu í kvöld með því að þykjast vera að loka rennilás yfir munninum á sér. Augljóst að því var beint að Kjartani.

Hér að neðan má sjá myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók þegar Viðar fagnaði markinu. Viðar hljóp að Hafliða og kyssti myndavél hans er hann fagnaði.
Þegar Viðar kom upp að myndavélinni fór fókusinn á myndavélinni.
@kjahfin 🤫😉#fotboltinet pic.twitter.com/R1xataVVHt
— Gunnlaugur Jón (@gunnlaugurjon) March 22, 2019
Viðar Örn með geggjað mark og enn betra fagn. Geggjaður banter. Svona á að svara 🤐 #Fotboltinet
— Hjalti Ómars (@Hjaltiom) March 22, 2019
Fagn Vök beint á annan íslending. Fíla það. Svara á vellinum #fotboltinet
— magnus bodvarsson (@zicknut) March 22, 2019
Sigta.. salta! 🤐 pic.twitter.com/8xm6yRazUt
— Tómas Sjöberg (@tommikungfu) March 22, 2019
Athugasemdir