Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. mars 2020 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rooney: Liverpool á skilið að vinna deildina
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, fyrrum fyrirliði Manchester United og núverandi leikmaður Derby County, telur nauðsynlegt að klára úrvalsdeildartímabilið þó það hafi áhrif á næstu leiktíð.

Rooney segir Liverpool eiga skilið að hampa Englandsmeistaratitlinum eftir langa bið enda liðið með afgerandi forystu á toppi deildarinnar.

Það getur ekki verið auðvelt fyrir Rooney að segja þetta, enda uppalinn hjá Everton áður en hann gekk í raðir Rauðu djöflanna.

„Liverpool mun hampa úrvalsdeildartitlinum. Sem Everton-maður og fyrrum leikmaður Manchester United í 13 ár er partur af mér sem vill láta aflýsa tímabilinu," sagði Rooney.

„En nei, Liverpool hafa verið stórkostlegir og eiga titilinn skilið. Það eina sanngjarna í stöðunni er að klára tímabilið. Getið þið ímyndað ykkur að bíða í 30 ár eftir titli og missa hann af honum með þessum hætti?

„Það verður að klára tímabilið, þó það geti valdið hnjaski á næstu leiktíð."

Athugasemdir
banner