Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Héraðsdómaranámskeið fyrir konur í vikunni
Mynd: Anna Þonn - fotbolti.net
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 25. mars kl. 17:30.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara og mun Bríet Bragadóttir FIFA dómari kenna á námskeiðinu.

Hægt er að hlusta á viðtal við Bríeti í Heimavellinum hér að neðan.

Héraðsdómaranámskeiðið veitir dómurum réttindi til að starfa á leikjum í meistaraflokki, en um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.

Einungis þeir sem lokið hafa byrjendanámskeiði hafa rétt á því að sitja námskeiðið. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.

Skráning er hafin á [email protected].
Heimavöllurinn: Bríet Bragadóttir: Ekki hægt að skulda í dómgæslu
Athugasemdir
banner