Grótta hefur fengið bakvörðinn Ástbjörn Þórðarson á láni frá KR fyrir komandi tímabil í Pepsi Max-deildinni.
Ástbjörn var á láni hjá Gróttu síðari hlutann á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu að vinna Inkasso-deildina.
Ástbjörn var á láni hjá Gróttu síðari hlutann á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu að vinna Inkasso-deildina.
Grótta fékk í vikunni Karl Friðleif Gunnarsson á láni frá Breiðabliki en fyrr í vetur kom sóknarmaðurinn Ágúst Freyr Hallsson til félagsins frá ÍR.
„Grótta býður Ástbjörn innilega velkominn aftur til félagsins og væntir mikils af honum í sumar," segir á Twitter síðu Gróttu.
Ástbjörn er tvítugur en hann á ellefu leiki að baki í efstu deild og 22 leiki í næstefstu deild.
Athugasemdir