Smith Rowe og Nelson á förum - Chelsea náði samkomulagi við Aston Villa - Úrvalsdeildarfélög keppast um Abraham - Arsenal vill Nico Williams -...
   mið 22. maí 2024 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Landsliðshópurinn - Albert ekki í hópnum
Icelandair
Enginn Albert.
Enginn Albert.
Mynd: Getty Images
Hlynur Freyr fékk kallið.
Hlynur Freyr fékk kallið.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Bjarki Steinn er kominn í hópinn.
Bjarki Steinn er kominn í hópinn.
Mynd: Getty Images
Åge Hareide, landsliðsþjálfari A karla, hefur valið hóp sem mætir Englandi og Hollandi í vináttuleikjum í júní.
Ísland mætir Englandi föstudaginn 7. júní á Wembley og Hollandi mánudaginn 10. júní á De Kuip.

Athygi vekur að Albert Guðmundsson er ekki í landsliðshópnum. Á síðasta ári kærði kona Albert fyrir kynferðisbrot, það mál var fellt niður fyrir valið á síðasta landsliðshópi en eftir að hópurinn var tilkynntur var niðurfellingin kærð. Það mál er enn í gangi og því mátti líklega ekki velja Albert í hópinn.

Inn í hópinn koma þeir Hlynur Freyr Karlsson, Brynjar Ingi Bjarnason og Bjarki Steinn Bjarkason.

Guðlaugur Victor Pálsson, Hjörtur Hermannsson og Alfreð Finnbogason voru með í mars en eru ekki með í þessu verkefni. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hafði sett stefnuna á að vera með í þessu verkefni en hann er ekki í hópnum.

Hópurinn:
Markverðir:
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford FC - 9 leikir
Elías Rafn Ólafsson - C. D. Mafra - 6 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking FK - 4 leikir

Varnarmenn:
Kolbeinn Birgir Finnsson - Lyngby Boldklub - 10 leikir
Guðmundur Þórarinsson - OFI Crete F.C. - 15 leikir
Sverrir Ingi Ingason - FC Midtjylland - 49 leikir, 3 mörk
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 17 leikir
Hlynur Freyr Karlsson - FK Haugesund - 1 leikur
Brynjar Ingi Bjarnason - HamKam - 16 leikir, 2 mörk
Alfons Sampsted - FC Twente - 21 leikur

Miðjumenn:
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia FC - 2 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - Fortuna Düsseldorf - 25 leikir, 3 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 19 leikir, 1 mark
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 17 leikir, 3 mörk
Jóhann Berg Guðmundsson - Burnley F.C. - 91 leikur, 8 mörk
Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 56 leikir, 6 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - AFC Ajax - 1 leikur
Arnór Sigurðsson - Blackburn Rovers F.C. - 31 leikur, 2 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Venezia FC - 15 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson - AGF - 26 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - OH Leuven - 35 leikir, 4 mörk
Willum Þór Willumsson - Go Ahead Eagles - 9 leikir

Framherjar:
Orri Steinn Óskarsson - FC Kobenhavn - 8 leikir, 2 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - Lyngby Boldklub - 22 leikir, 6 mörk
Athugasemdir
banner