Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 17:43
Kári Snorrason
Viðtal
Jason ræðir viðskilnaðinn við Grimsby og næstu skref - „Útiloka ekki neitt“
Gekk til liðs við Grimsby fyrir tveimur árum.
Gekk til liðs við Grimsby fyrir tveimur árum.
Mynd: Grimsby Town
Í góðum gír á æfingu.
Í góðum gír á æfingu.
Mynd: Grimsby
„Skrokkurinn er góður í dag og ég er orðinn ótrúlega spenntur að stíga aftur á völlinn.“
„Skrokkurinn er góður í dag og ég er orðinn ótrúlega spenntur að stíga aftur á völlinn.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jason Daði Svanþórsson hefur yfirgefið Grimsby Town í Englandi eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu.

Hann var fastamaður í liðinu á fyrra tímabilinu með liðinu og spilaði 43 leiki í deild, þar af 36 sem byrjunarliðsmaður. Á nýloknu tímabili kom hann þó mun minna við sögu og var lengi frá vegna erfiðra meiðsla.

Jason er 26 ára kantmaður sem gekk til liðs við enska félagið frá Breiðabliki fyrir tveimur árum eftir að hafa verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar.

Fótbolti.net ræddi við Jason um tímann hjá Grimsby og næstu skref.

„Ég var alveg meðvitaður um að það væri langsótt (að fá áframhaldandi samning) miðað við hvernig tímabilið þróaðist, þar sem ég náði ekki að spila jafn mikið og ætlast var til. Það var ekkert samtal fyrr en í lok tímabilsins og ég sýndi félaginu fullan skilning á því að framlengja ekki,“ segir Jason aðspurður um hvernig viðskilnaðurinn við Grimsby hafi atvikast.

Lærdómsríkt tímabil
Jason kom aðeins við sögu í sjö leikjum á tímabilinu. Hann var að glíma við þrálát hnémeiðsli sem héldu honum fjarri vellinum meirihluta tímabils.

„Það eru alltaf vonbrigði að meiðast og vera meiddur en þetta hefur styrkt mann mikið. Það er hægt er að draga mikinn lærdóm út úr svona tímabili. Ég var með háleit markmið eftir gott tímabil í fyrra en þetta er hluti af þessum bransa. Miklu frekar er ég þakklátur fyrir þessa reynslu síðustu tvö árin.“

Hvernig er staðan á þér í dag?
„Skrokkurinn er góður í dag og ég er orðinn ótrúlega spenntur að stíga aftur á völlinn,“ segir Jason.

Hvað tekur við?
„Nú fer ég í frí en held áfram að byggja mig upp líkamlega. Ég er á fullu í prógrammi til að vera klár þegar nýtt tímabil hefst. Það er fókusinn núna.“

„Það hafa verið þreifingar frá nokkrum liðum erlendis, frá Englandi þar á meðal, en ekkert klárt eins og er. Ég útiloka ekki neitt, ég er bara að einbeita mér að því að njóta þess að spila fótbolta aftur með skrokkinn í standi,“
segir Jason.

Um mögulega heimkomu
Það hefur verið rætt og slúðrað um mögulega heimkomu Jasons. Breiðablik og KR eru lið sem hafa oftast verið nefnd í því samhengi.

Hann var spurður hvort að það væri möguleiki og hvort að hann hefði rætt við íslensk lið.
„Eins og ég segi þá útiloka ég ekki neitt. Ég læt umboðsmanninn minn um að svara símanum þessa dagana og veit að einhver lið hafa sett sig í samband við hann, en eins og er þá erum við bara að skoða þetta í rólegheitunum.“
Slapp
banner