Ásgeir Marteins: Við þurftum að bæta sóknarleikinn
Auglýsing

Ásgeir Marteinsson.

Mynd: Heimasíða ÍA

Ásgeir Marteinsson.

Mynd: Heimasíða ÍA
Ásgeir Marteinsson skoraði fjórða mark ÍA í 4-2 sigri liðsins á Keflavík á heimavelli í Pepsi-deild karla í kvöld.
Þetta var einungis annar sigur Skagamanna í sumar og sá fyrsti á heimavelli. Kom hann gegn botnliði Keflvíkinga sem eru í vandræðum.

„Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið mjög kærkomið, að sigra loksins á heimavelli. Ég er mjög sáttur með það,\" sagði Ásgeir.
ÍA hefur núna skorað átta mörk í sumar og kom því helmingu þeirra í kvöld.
„Ég veit ekki hvað er að gerast, það rigndi inn mörkum í dag. Við vorum náttúrulega ekki að skora mikið á tímabili og við þurftum að bæta sóknarleikinn og gott að það sé eitthvað komið í gang þar.\"