banner
   lau 22. júní 2019 06:00
Oddur Stefánsson
Heimild: talkSport 
Grant McCann tekur við Hull (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hull hefur staðfest ráðningu Grant McCann sem hefur skrifað undir eins árs langan samning við félagið.

Grant var hjá enska félaginu Doncaster Rovers en er núna tekinn við Tígrisdýrunum eftir að samningar náðust ekki við Nigel Adkins fyrrum þjálfara Hull.

„Ég er gríðarlega ánægður að vera hérna og er virkilega spenntur fyrir þessari áskorun," sagði McCann á blaðamannafundi. „Ég er mjög metnaðarfull manneskja og þetta var næsta skref fyrir mig sem þjálfari."

Hull endaði í 13. sæti í Championship deildinni undir stjórn Atkins á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner