Fjölnir hefur fengið sóknarmanninn unga, Þóreyju Björk Eyþórsdóttir, á láni frá FH fyrir baráttu sumarsins í Lengjudeildinni.
Þórey er 18 ára kantmaður sem býr yfir miklum hraða.
Þórey Björk á tíu leiki að baki í Pepsi Max-deildinni með FH og eitt mark. Þá lék hún 15 leiki í næst efstu deild í fyrra og hjálpaði FH að komast aftur í deild þeirra bestu.
Fjölnir hóf leik í Lengjudeildinni á föstudagskvöld þegar liðið tapaði 1-0 fyrir Gróttu.
Meistaraflokkur kvenna hefur fengið sóknarmanninn unga, Þóreyju Björk Eyþórsdóttir, á láni frá FH fyrir baráttu sumarsins í Lengjudeildinni.
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) June 21, 2020
Þórey er 18 ára kantmaður sem býr yfir miklum hraða.
Knattspyrnudeild Fjölnis býður Þórey hjartanlega velkomna í Voginn#FélagiðOkkar pic.twitter.com/z0zrqVIjYG
Athugasemdir