Fotbolti.net
22.06.23 - 23:16
Þorsteinn Haukur Harðarson

Helgi Sig: Menn sýndu úr hverju þeir eru gerðir

Auglýsing
Helgi Sigurðsson

Helgi Sigurðsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

"Þetta var erfiður leikur en á frábærum velli. Ég vil hrósa Ægismönnum fyrir völlinn. Þetta er besti grasvöllur sem við höfum spilað á í sumar," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur, eftir 2-1 sigur gegn Ægi í vonskuveðri í dag.

"Að því sögðu fannst mér þetta sanngjarn sigur og ég er ánægður með mína leikmenn. Eftir að við lentum í smá brekku seinustu vikur sýndu menn úr hverju þeir eru gerðir og spiluðu fantagóðan fótbolta."

Grindavík klúðraði vítaspyrnu í seinni hálfleik þegar Guðjón Pétur Lýðsson þrumaði yfir af punktinum. Í liði Grindjána eru margir góðir spyrnumenn sem gætu gert tilkall að fá að taka næstu spyrnu. Verður hausverkur að ákveða hver fær að taka næsta víti?

"Neinei. Óskar er okkar vítaskytta en hann var ekki til taks. Kannski hefði verið gott að láta mann sem var búinn að skora þrennu taka vítið. En svona er þetta bara. Guðjón er góður spyrnumaður og hefði átt að skora. Hann veit það sjálfur."

Nánar er rætt við Helga í spilaranum hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.