Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. júlí 2022 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dwight Gayle til Stoke (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Dwight Gayle er genginn í raðir Stoke City frá Newcastle á frjálsri sölu. Gayle er 32 ára sóknarmaður sem var í sex ár á mála hjá Newcastle.

Hann kom frá Crystal Palace árið 2016 og raðaði inn mörkum á sínu fyrsta tímabili með Newcastle, skoraði 23 mörk í öllum keppnum þegar Newcastle vann sér sæti í úrvalsdeildinni.

Tímabilið 2017-18 skoraði hann sex mörk í úrvalsdeildinni. Í kjölfarið var hann lánaður til WBA þar sem hann raðaði inn mörkunum í Championship deildinni.

Alls lék Gayle 122 leiki fyrir Newcastle og skroaði 34 mrök. Á síðasta tímabili koma hann einungis við sögu í níu leikjum og tókst ekki að skora mark.

Núna er hann aftur mættur í Championship deildina og er aldrei að vita nema hann raði inn mörkunum þar. Stoke endaði í 14. sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner