Magni á Grenivík hefur fengið Kára Gautason á láni frá KA út tímabilið.
Kári, sem er fæddur 2003, hefur komið við sögu í tveimur leikjum með KA í sumar, en hann hefur spilað einn bikarleik og einn leik í Bestu deildinni.
Hann mun spila á láni hjá Magna á Grenivík í 2. deildinni það sem eftir er af þessu tímabili.
Magni er í neðsta sæti deildarinnar með 6 stig og þarf svo sannarlega á styrkingu að halda fyrir átökin fyrir seinni hluta deildarinnar.
Kári verður væntanlega í leikmannahópnum sem mætir Ægi á morgun.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir