Jude Bellingham verður einn heitasti bitinn á næsta ári en Liverpool og Real Madrid hafa bæði áhuga á enska miðjumanninum.
Fabrizio Romano segir að Liverpool hafi í síðasta mánuði sent fyrirspurn til Dortmund varðandi þennan nítján ára leikmann.
Borussia Dortmund hafi svarað því að Bellingham væri ósnertanlegur þetta sumarið.

Það má búast við harðri baráttu milli Real Madrid og Liverpool um Bellingham á næsta ári. Mögulega munu fleiri stórlið blanda sér í þann slag.
Bellingham kom upp úr unglingastarfi Birmingham en fór til Dortmund 2020 þar sem hann hefur þróast út í einn besta unga miðjumann Evrópu. Hann hefur spilað 15 landsleiki fyrir England og spilað 90 leiki fyrir Dortmund, skorað tíu mörk og átt 18 stoðsendingar.
No bid or negotiations for Matheus Nunes to Liverpool, as things stand. Nothing has changed aroud this deal. 🔴❌ #LFC
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 22, 2022
Liverpool asked for Jude Bellingham in June, but it was impossible deal - not even a negotiation, as Dortmund consider him ‘untouchable’ this summer.
Athugasemdir